8 Febrúar 2011 12:00

Ellefu líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um helgina. Átta þeirra áttu sér stað í miðborginni en hinar í úthverfum borgarinnar. Líkamsárásirnar voru nær allar minniháttar og mestmegnis voru þetta pústrar. Í einu tilviki var þó um að ræða bæði nef- og kinnbeinsbrot en sá sem fyrir því varð, karl um þrítugt, lenti í átökum við annan mann með fyrrgreindum afleiðingum.