14 September 2010 12:00

Ellefu líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um helgina og voru þær flestar minniháttar. Sú alvarlegasta átti sér stað í heimahúsi í austurborginni en þar var sparkað í andlit manns með þeim afleiðingum að hann kjálkabrotnaði. Ekki er vitað hvað árásarmanninum gekk til.