7 Apríl 2009 12:00

Ellefu líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um helgina. Tæplega helmingur þeirra, eða fimm, átti sér stað í miðborginni aðfaranótt laugardags. Flestar líkamsárásanna voru minniháttar en nokkrir karlar fóru þó heim ýmist nefbrotnir eða með brotnar tennur eftir skemmtanir næturinnar. Í tveimur tilvikum voru þolendur skallaðir í andlitið. Alvarlegasta líkamsárásin átti sér stað í Lækjargötu aðfaranótt sunnudags. Þar var karl á þrítugsaldri sleginn í andlitið og var hann fluttur á sjúkrahús, alvarlega slasaður. Árásarmaðurinn var handtekinn nokkru síðar.