16 Apríl 2012 12:00

Ellefu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sjö þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Kópavogi og einn í Hafnarfirði og Garðabæ. Tveir voru teknir á föstudagskvöld, fimm á laugardag og fjórir á sunnudag. Þetta voru níu karlar á aldrinum 18-52 ára og tvær konur, 27 og 54 ára. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi og tveir hafa aldrei öðlast ökuréttindi.