10 September 2007 12:00

Ellefu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sex voru stöðvaðir á laugardag, fjórir á sunnudag og einn í nótt. Níu voru teknir í Reykjavík og tveir í Hafnarfirði. Þetta voru níu karlar á aldrinum 20-48 ára og tvær konur. Önnur er á þrítugsaldri en hin á fimmtugsaldri.

Á sama tímabili voru tveir karlar og ein kona tekin fyrir aka undir áhrifum fíkniefna. Annar karlinn er um tvítugt og hinn rúmlega þrítugur en konan er liðlega tvítug. Karlarnir voru stöðvaðir í Hafnarfirði og Reykjavík en konan í Mosfellsbæ.