3 Október 2011 12:00

Ellefu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sjö þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Kópavogi og Hafnarfirði. Fimm voru teknir á laugardag og sex á sunnudag. Þetta voru níu karlar á aldrinum 17-47 ára og tvær konur, önnur um þrítugt en hin á áttræðisaldri. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi en sá síðastnefndi var á stolnum bíl.