5 Febrúar 2022 21:45

Leit með kafbáti í Þingvallavatni seinni partinn í dag hefur leitt í ljós að enginn þeirra fjögurra sem í vélinni voru eru nú inni í flakinu.  Því hefur svæðisstjórn björgunarsveita hafist handa við að skipuleggja áframhaldandi leit í og við vatnið á morgun.   Fjörur voru gengnar þar í dag og eru síðustu hópar um það bil að klára sín verk nú í þessum töluðu orðum án þess að það  hafi borið árangur.   Ljóst er að fólkið hefur komist úr vélinni af sjálfsdáðum eftir að hún lenti í vatninu en  slysstaðurinn er um 1 km frá landi þar sem styst er.

Leitarhópar hafa verið boðaðir til leitar á morgun á og við vatnið eftir nánara skipulagi svæðisstjórar björgunarsveita.  Ljóst er að ef það ber ekki árangur verður ekkert aðhafst þar á mánudag og að líkindum lítið á þriðjudag vegna veðurs.