9 Maí 2007 12:00
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði þrjá ökumenn í gær sem allir voru á bílum á nagladekkjum en það er með öllu óheimilt á þessum árstíma. Nú ber að greiða 5 þúsund krónur í sekt fyrir hvert nagladekk og því kemur trassaskapurinn verulega við pyngjuna hjá áðurnefndum ökumönnum.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ítrekar þau tilmæli til eigenda og umráðamanna ökutækja sem eru búin nagladekkjum að gera þar bragarbót á.