23 Maí 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði á annan tug ökumanna í gær og fyrradag en hinir sömu voru allir á bílum á nagladekkjum en það er óheimilt á þessum árstíma. Nú ber að greiða 5 þúsund krónur í sekt fyrir hvert nagladekk  og því kemur trassaskapurinn verulega við pyngjuna hjá áðurnefndum ökumönnum. Lögreglan ítrekar þau tilmæli til eigenda og umráðamanna ökutækja sem eru búin nagladekkjum að gera þar bragarbót á.