4 Júní 2017 16:41

Þýskur karlmaður,  ferðamaður á sjötugsaldri, sem fluttur var á sjúkrahús í Reykjavík eftir að bifreið hans og hjólhýsi sem hún dró fuku út af Suðurlandsvegi við Freysnes 1. júní s.l. er látinn.   Kona hans, sem einnig var í bílnum, slasaðist minna og hefur verið útskrifuð af sjúkrahúsi.  Slysið, og tildrög þess, er til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi.  Ekki er unnt að veita upplýsingar um nafn hins látna að svo stöddu.