7 September 2009 12:00

Í mánaðarskýrslu (júlí) umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að umferðarslysum fækkar frá fyrra ári um 29% fyrstu sjö mánuði ársins. Sambærilegar tölur frá tryggingafélögunum sýna 21% fækkun. Skráðum umferðaróhöppum fækkar á sama tíma um 54% milli ára. Þá fækkun má að hluta rekja til samkomulags tryggingafélaga og Neyðarlínu í endaðan júní 2008 um aðstoð á vettvangi til handa þeim er lenda í minniháttar umferðaróhöppum. Lögreglan hætti þá að mestu að sinna slíkum óhöppum og skrá. Tölur tryggingafélaga sýna á sama tíma 25% fækkun.

Umferðaróhöppum þar sem ölvun kemur við sögu fækkar milli ára úr 111 árið 2008 í 86. Það gefur vísbendingar um fækkun slíkra brota almennt. Óhöpp tengd fíkniefnaneyslu fjölgar hinsvegar úr 18 í 30 á sama tímabili. Kærum vegna slíkra brota fjölgar jafnframt umtalsvert. Það er áhyggjuefni.

Mánaðarskýrslu (júlí) umferðardeildar má lesa með því að smella hér. Tekið skal fram að allar tölur í henni eru bráðabirgðatölur.