26 Janúar 2021 11:57
Undanfarið hefur borið á tilkynningum um falsaða peningaseðla, bæði 5000 og 10000 króna seðla, auk evru seðla, en Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er með nokkur slík mál til rannsóknar. Lögreglan beinir því þeim tilmælum til afgreiðslufólks að vera á varðbergi vegna þessa og hvetur jafnframt til þess að þeir sem eru í afgreiðslustörfum kynni sér helstu öryggisþætti íslenskra peningaseðla á heimasíðu Seðlabanka Íslands, en með þær upplýsingar að leiðarljósi á að vera auðvelt að greina á milli falsaðra og ófalsaðra peningaseðla. Á vef Evrópska seðlabankans koma jafnframt fram upplýsingar um hvernig skoða megi evru seðla til að meta hvort þeir séu falsaðir.
Ef fólk verður vart við falsaðan seðil skal kalla til lögreglu í gegnum 112.