2 Mars 2016 14:05

Héraðsdómur Suðurlands hefur, að kröfu lögreglustjórans á Suðurlandi, úrskurðað kínverskan ríkisborgara til að sæta áframhaldandi farbanni til föstudagsins 22. apríl n.k.   Maðurinn var ökumaður bifreiðar sem lenti í árekstri við aðra bifreið á einbreiðri brú yfir Hólá á þjóðvegi 1 í Skaftafellssýslu þann 26.12.2015  Ökumaður þeirrar bifreiðar lést af áverkum sem hann hlaut við áreksturinn.

Ákæra gegn manninum hefur verið gefin út og var mál hans þingfest s.l. föstudag í Héraðsdómi Suðurlands.  Brot hans er m.a talið varða við 215. gr. almennra hegningalaga nr. 19/1940 auk ákæða umferðarlaga.