12 Júní 2020 08:47

Skráð voru 712 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í maí og fjölgaði þessum brotum á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir maí 2020.

Tilkynningar um þjófnaði fjölgaði á milli mánaða og var þar helst að sjá fjölgun á reiðhjólaþjófnaði. Tilkynningum um innbrot fækkaði á milli mánaða en það sem af er ári hafa borist um 19 prósent færri tilkynningar um innbrot en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Skráðum ofbeldisbrotum fækkaði á milli mánaða og sömuleiðis tilkynningum um heimilisofbeldi. Tilvik þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi fjölgaði á milli mánaða.

Skráðum fíkniefnabrotum fjölgaði töluvert á milli mánaða og voru fimm stórfelld fíkniefnabrot skráð á höfuðborgarsvæðinu í maí. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fjölgaði einnig töluvert á milli mánaða líkt og tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur.

Í apríl voru skráð 866 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Það sem af er ári hafa verið skráð um 24 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.