13 Nóvember 2008 12:00

Tveir karlar voru í héraðsdómi í dag úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 27. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þeir eru grunaðir um aðild að ætlaðri framleiðslu fíkniefna í Hafnarfirði. Mennirnir, sem eru á þrítugs- og fertugsaldri, hafa áður komið við sögu hjá lögreglu, m.a. vegna fíkniefnamála. Þeir hafa kært úrskurðinn til Hæstaréttar.