13 September 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann búnað til framleiðslu fíkniefna í bílskúr í austurborg Reykjavíkur síðdegis í dag. Lagt var hald á tæki og tól sem og efni til að framleiða fíkniefni og nú er unnið að því með aðstoð sérfræðinga frá Háskóla Íslands og Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins að fjarlægja búnaðinn af vettvangi. Talið er að amfetamín hafi verið framleitt í bílskúrnum en húsráðandi, karl á fimmtugsaldri, var handtekinn í þágu rannsóknarinnar og vistaður á lögreglustöð. Engin sprengihætta er samfara þeim aðgerðum lögreglu sem nú standa yfir. Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.