14 Janúar 2014 12:00

Allnokkur fíkniefnamál komu til kasta Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina en í nær öllum þeirra áttu í hlut ungir karlar. Fíkniefni fundust við leit í fjórum bifreiðum, auk peninga sem taldir eru vera tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Þá var lagt hald á fíkniefni við húsleit á tveimur stöðum í umdæminu, en málin sem hér hafa verið nefnd tengjast ekki. Í þessum aðgerðum var mestmegnis lagt hald á kannabisefni, en einnig lítilræði af amfetamíni.