10 Mars 2014 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á um hálft kíló af kannabisefnum við húsleit á tveimur stöðum í austurborginni í síðustu viku. Karl á þrítugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknarinnar, en fíkniefnin fundust á heimili hans og í bílskúr sem hann hefur til umráða annars staðar í borginni. Á heimili mannsins var einnig lagt hald á talsvert af peningum, sem taldir eru vera tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Í óskyldu máli, einnig í austurborginni í síðustu viku, stöðvaði lögreglan kannabisræktun og lagði hald á tæplega 30 kannabisplöntur. Karl á sjötugsaldri var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar, en í híbýlum hans var að finna mikið af búnaði til ræktunar kannabisplantna.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.