24 Ágúst 2014 12:00

Nokkur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á menningarnótt, en hún lagði hald á bæði  kannabisefni og einnig lítilræði af amfetamíni og kókaíni. Í einu málanna fundust kannabisefni í bifreið og viðurkenndi farþegi í bílnum aðild sína að málinu. Lögreglan framkvæmdi eina húsleit á menningarnótt, en í íbúð fjölbýlishúss í borginni fundust fíkniefni og hnúajárn.