16 Mars 2020 13:06

Fjórir karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 10. apríl að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á fíkniefnamáli. Mennirnir voru handteknir í aðgerðum lögreglunnar í og við Hvalfjarðargöng í lok síðasta mánaðar, en lagt hefur verið hald á talsvert af fíkniefnum í tengslum við málið. Um tíma sat kona einnig í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknarinnar, en hún er nú laus úr haldi lögreglu.

Rannsókn málsins miðar vel.