12 Maí 2009 12:00

Þrír karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 29. maí að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þeir hafa allir kært úrskurðinn til Hæstaréttar.

Mennirnir, sem eru á þrítugs- og fimmtugsaldri, voru handteknir í apríl um borð í skútunni SIRTAKI djúpt út af SA-landi. Þremenningarnir eru grunaðir um stórfelld fíkniefnabrot.