11 Maí 2009 12:00

Þrír karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Einn var úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 29. maí en tveir til 2. júní. Þeir hafa allir kært úrskurðinn til Hæstaréttar.

Mennirnir, sem eru allir um þrítugt, voru handteknir á Austurlandi í apríl en þeir eru grunaðir um stórfelld fíkniefnabrot. Þremenningarnir hafa áður komið við sögu hjá lögreglu.