23 Júní 2009 12:00

Þrír karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 14. júlí að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli almannahagsmuna. Þeir hafa allir kært úrskurðinn til Hæstaréttar. Mennirnir, sem eru á þrítugs- og fimmtugsaldri, voru handteknir í apríl um borð í skútunni SIRTAKI djúpt út af SA-land en þeir eru grunaðir um stórfelld fíkniefnabrot.

Þrír karlar til viðbótar sitja einnig í gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn málsins. Þeir eru allir um þrítugt og voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald fyrr í mánuðinum og sömuleiðis á grundvelli almannahagsmuna. Einn þeirra var úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 2. júlí en hinir til 9. júlí.