2 Júní 2009 12:00

Tveir karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 12. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Þeir hafa báðir kært úrskurðinn til Hæstaréttar.

Mennirnir, sem eru um þrítugt, voru handteknir á Austurlandi í apríl en þeir eru grunaðir um stórfelld fíkniefnabrot. Fjórir karlar til viðbótar sitja í gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn sama málsins.