5 Maí 2020 14:12
Fjórir karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 22. maí á grundvelli almannahagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á fíkniefnamáli. Mennirnir voru handteknir í aðgerðum lögreglunnar í og við Hvalfjarðargöng í lok febrúar, en lagt hefur verið hald á talsvert af fíkniefnum í tengslum við málið.
Rannsókn málsins miðar vel.