8 Nóvember 2011 12:00

Karl á sextugsaldri hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 6. desember  að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um aðild að innflutningi á verulegu magni af fíkniefnum og sterum og er það gert á grundvelli almannahagsmuna. Maðurinn hefur kært úrskurðinn til Hæstaréttar.

Fíkniefnin og sterarnir sem um ræðir fundust við leit lögreglu og tollgæslu í gámi sem kom til landsins í síðasta mánuði. Rannsókn málsins hefur staðið yfir í alllangan tíma og hefur verið unnin í samvinnu við tollgæsluna. Karl á fimmtugsaldri er í haldi lögreglu vegna sama máls en sá hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.