18 Janúar 2010 12:00

Karl á fimmtugsaldri hefur verið úrskurðaður í farbann til 12. febrúar að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn, sem er erlendur ríkisborgari, er grunaður um aðild að innflutningi á rúmlega 800 grömmum af kókaíni til landsins frá Bandaríkjunum. Maðurinn var handtekinn í lok síðasta árs og sat í gæsluvarðhaldi frá 30. desember. Rannsókn málsins miðar vel.