4 Nóvember 2010 12:00

Karl á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 11. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn, sem var handtekinn í gær, er grunaður um aðild að máli sem er til rannsóknar hjá lögreglu og snýr að ætlaðri framleiðslu fíkniefna, sölu þeirra og dreifingu. Fjórir aðrir karlar, sem eru á þrítugs- og fertugsaldri, voru handteknir í Reykjavík og Grímsnesi í síðasta mánuði vegna sama máls og úrskurðaðir í gæsluvarðhald sem nú hefur verið framlengt yfir þeim öllum til 11. nóvember. Mennirnir fimm, sem sitja í gæsluvarðhaldi, eru allir erlendir ríkisborgarar.

Eins og áður hefur komið fram voru framkvæmdar fimm húsleitir í þágu rannsóknarinnar í Reykjavík, Reykjanesbæ og Grímsnesi. Lagt var hald á amfetamín og kókaín og um 2 kg af marijúana auk fjármuna, eða um 6 milljónir króna í reiðufé sem er álitið að sé afrakstur fíkniefnasölu. Lögregla tók einnig í sína vörslu ýmis önnur verðmæti sem og hluti sem taldir eru tengjast ætlaðri brotastarfsemi. Við áðurnefndar aðgerðir naut lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar lögregluliðanna á Selfossi og Suðurnesjum auk lögreglumanna frá embætti ríkislögreglustjóra.