14 Febrúar 2023 13:35

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á mikið magn fíkniefna við húsleitir í umdæminu í síðustu viku, en þar var um að ræða um 7 kg af amfetamíni og um 40 kg af marijúna, auk annarra fíkniefna sem og frammistöðubætandi efna. Fimm voru handteknir í þessum aðgerðum gegn skipulagðri brotastarfsemi og fjórir þeirra voru síðan í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 16. febrúar í þágu rannsóknarinnar, sem hefur staðið yfir undanfarnar vikur. Hinir handteknu eru grunaðir um að hafa staðið að framleiðslu fíkniefna, sem og sölu og dreifingu þeirra. 

Við minnum á upplýsingasíma lögreglu 800 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um skipulagða brotastarfsemi, eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um.