21 Október 2010 12:00

Fjórir karlar hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 4. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Mennirnir, sem eru erlendir ríkisborgarar og á þrítugs- og fertugsaldri, voru handteknir í Reykjavík og Grímsnesi í gær en rannsókn lögreglu snýr að ætlaðri framleiðslu fíkniefna, sölu þeirra og dreifingu. Samhliða voru framkvæmdar fimm húsleitir í Reykjavík, Reykjanesbæ og Grímsnesi. Lagt var hald á amfetamín og kókaín og um 2 kg af marijúana auk fjármuna, eða um 6 milljónir króna í reiðufé sem er álitið að sé afrakstur fíkniefnasölu. Lögregla tók einnig í sína vörslu ýmis önnur verðmæti sem og hluti sem taldir eru tengjast ætlaðri brotastarfsemi. Við áðurnefndar aðgerðir naut lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar lögregluliðanna á Selfossi og Suðurnesjum auk lögreglumanna frá embætti ríkislögreglustjóra.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.