19 Október 2011 12:00

Karl um þrítugt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 2. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um fíkniefnamisferli. Maðurinn er erlendur ríkisborgari og hefur áður komið við sögu hjá lögreglu. Hann var handtekinn í gær en samhliða var lagt hald á umtalsvert magn af sterkum fíkniefnum. Hinn handtekni er grunaður um að vera stórtækur í sölu og dreifingu fíkniefna. Málið er í rannsókn en það hefur verið unnið í samvinnu við tollyfirvöld.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.