30 September 2008 12:00

Karl á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 7. október að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn, sem er erlendur ríkisborgari en búsettur hérlendis, var handtekinn í gærkvöld en hann er grunaður um aðild að fíkniefnamáli sem kom upp á Seyðisfirði fyrir nokkrum vikum. Þá fannst verulegt magn fíkniefna eða u.þ.b. 20 kg af hassi og 1,7 kg af amfetamíni. Úrskurðurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur.