14 Febrúar 2017 11:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði í síðustu viku og lagði hald á verulegt magn af fíkniefnum, en um var að ræða rúmlega 1.100 kannabisplöntur. Plönturnar var að finna á tveimur stöðum í húsinu, en ræktunin var mjög fullkomin og búnaðurinn eftir því. Á sama stað var einnig lagt hald á hálft kíló af kannabisefnum, sem var tilbúið til dreifingar/neyslu. Húsráðandi, karl á fertugsaldri, var handtekinn í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu, sem telst upplýst. Í fórum mannsins fannst einnig ætlað amfetamín.

Þá fann lögreglan um 5 kg af marijúana í óskyldu máli í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði. Fíkniefnin voru tilbúin til dreifingar/neyslu. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, var handtekinn í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu, sem telst einnig upplýst.

Fyrrnefndar aðgerðir eru liður í að hamla gegn sölu, dreifingu og framleiðslu fíkniefna, en lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.