2 Júlí 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni við húsleit í Hafnarfirði í gærkvöld. Um var að ræða bæði amfetamín og kókaín en einnig kannabisplöntur. Á sama stað var einnig lagt hald á tölvur, síma og skjávarpa. Fimm manns voru í húsinu þegar lögreglan kom á vettvang og voru þeir allir handteknir. Við húsleitina naut lögreglan aðstoðar embættis ríkislögreglustjóra og fíkniefnaleitarhunda frá tollinum.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.