13 Júní 2013 12:00

Karl á þrítugsaldri var handtekinn í Hafnarfirði í gærkvöld, en sá freistaði þess að komast undan lögreglunni á tveimur jafnfljótum. Hann tók til fótanna þegar laganna verðir birtust á vettvangi, en var hlaupinn uppi eftir stuttan sprett. Amfetamín fannst í fórum mannsins, en viðkomandi hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.