25 Maí 2012 12:00
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni við húsleit í kjallaraíbúð í miðborginni í gær. Um var að ræða 200 grömm af marijúana í sölupakkningum. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, játaði aðild sína að málinu.
Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.