25 Júní 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni við húsleit í bílskúr í Mosfellsbæ um hádegisbil í gær. Um var að ræða bæði amfetamín og marijúana. Húsráðandi, karl á fertugsaldri, hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.