15 Maí 2012 12:00

Nokkur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar í gær. Kannabisræktun var stöðvuð á tveimur stöðum í miðborginni en á þeim var einnig lagt hald á lítilræði af marijúana og amfetamíni. Húsráðendur, karlar á þrítugs- og fimmtugsaldri, hafa báðir áður komið við sögu hjá lögreglu í fíkniefnamálum. Kannabisefni voru líka haldlögð í tveimur öðrum málum í borginni en í þeim hafði lögreglan afskipti af þremur mönnum um tvítugt.