4 September 2013 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í húsi í vesturborginni fyrir skemmstu en á staðnum fundust 460 kannabisplöntur og 12 kg. af kannabisefnum sem verið var að undirbúa til sölu. Málið kom upp eftir að lögreglumenn voru kallaðir að vegna ótengds máls en árvekni lögreglumannanna varð til að málið komst upp. Í kjölfarið voru 5 aðilar handteknir og telst málið upplýst.

Í öðru máli bárust lögreglu upplýsingar um að fíkniefnasala færi fram í íbúð í austurborginni en eftir að hafa fylgst með íbúðinni var húsleit framkvæmd í kjölfarið. Þrír aðilar voru handteknir vegna málsins en í íbúðinni fannst töluvert magn kannabisefnia. Málið er enn til rannsóknar.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.