7 Apríl 2010 12:00

Þrír karlar voru handteknir í íbúð í Háaleitishverfi síðdegis í gær. Í íbúðinni og utan við hana fannst allnokkuð af marijúana og var hluti þess í söluumbúðum. Mennirnir, tveir á þrítugsaldri og einn á fertugsaldri, hafa allir áður komið við sögu hjá lögreglu.