18 Nóvember 2008 12:00

Þýskur karlmaður á sjötugsaldri hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 16. desember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli almannahagsmuna. Maðurinn, sem er fæddur árið 1943, var handtekinn á Seyðisfirði í byrjun september en í bíl hans fannst verulegt magn fíkniefna eða u.þ.b. 20 kg af hassi og 1,7 kg af amfetamíni. Rannsókn málsins er á lokastigi og verður það sent ríkissaksóknara á næstu dögum.

Annar karlmaður hefur einnig verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald en til 18. desember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli almannahagsmuna. Maðurinn, sem er á fimmtugsaldri, er grunaður um aðild að fíkniefnamáli sem kom einnig upp á Seyðisfirði en í júní fannst þar mikið magn fíkniefna í húsbíl sem kom til landsins með ferjunni Norrænu. Um var að ræða 190 kg af hassi og eitthvað af kókaíni. Maðurinn hefur kært úrskurðinn til Hæstaréttar.