7 Október 2008 12:00

Þýskur karlmaður á sjötugsaldri hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 18. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli almannahagsmuna. Maðurinn, sem er fæddur árið 1943, var handtekinn á Seyðisfirði í byrjun síðasta mánaðar en í bíl hans fannst verulegt magn fíkniefna eða u.þ.b. 20 kg af hassi og 1,7 kg af amfetamíni.

Annar þýskur karlmaður hefur sömuleiðis verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 16. október að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Maðurinn, sem er á þrítugsaldri og búsettur hérlendis, er grunaður um aðild að fyrrnefndu máli. Hann var handtekinn í síðustu viku.