4 Apríl 2011 12:00

Tveir karlar á þrítugsaldri voru handteknir í austurborginni í gær eftir að lögreglan stöðvaði þar ökutæki. Hjá þeim fundust fíkniefni en mennirnir voru einnig með nokkuð af peningum í fórum sínum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Sá þeirra sem sat undir stýri hafði þegar verið sviptur ökuleyfi en viðkomandi var í annarlegu ástandi. Hann reyndist jafnframt vera eftirlýstur fyrir aðrar sakir.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.