16 Ágúst 2011 12:00

Þrír fíkniefnasalar voru handteknir í Hafnarfirði á föstudag. Um var að ræða þrjá karla um tvítugt en í fórum þeirra fundust samtals nokkrir tugir gramma af marijúana. Þremenningarnir viðurkenndu allir að fíkniefnin hefðu verið ætluð til sölu.