19 Apríl 2013 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni við húsleit í íbúð í miðborginni í gær. Um var að ræða talsvert magn af kannabisefnum og amfetamíni. Þá tók lögregla líka í sína vörslu fjármuni sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Karl á fimmtugsaldri, sem áður hefur komið við sögu hjá lögreglu, var handtekinn í þágu rannsóknarinnar. Karl á þrítugsaldri var sömuleiðis handtekinn í gær, en sá var staðinn að sölu fíkniefna í austurborginni. Lagt var hald á fíkniefni og fjármuni í tengslum við rannsóknina. Maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.

Fyrrnefndar aðgerðir eru liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.