31 Október 2008 12:00

Karl á þrítugsaldri var handtekinn í miðborg Reykjavíkur í gærkvöld en í fórum hans fundust ætluð fíkniefni. Hann hafði einnig talsvert af peningum meðferðis en grunur leikur á að þeir séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Í framhaldinu var farið í húsleit á heimili mannsins og þar fannst meira af fíkniefnum. Þau voru haldlögð líkt og haglabyssa sem þar fannst. Við yfirheyrslu hjá lögreglu viðurkenndi maðurinn sölu fíkniefna. Annar karl, sömuleiðis á þrítugsaldri, var einnig stöðvaður í miðborginni í gær. Sá var með marijúana í fórum sínum og viðurkenndi hann líka sölu fíkniefna.

Fyrrnefndar aðgerðir eru liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.