8 Október 2010 12:00

Fíkniefni fundust við húsleit í Breiðholti síðdegis í gær. Um var að ræða bæði amfetamín og marijúana en talið er að fíkniefnin hafi verið ætluð til sölu. Tveir karlar og ein kona, öll á þrítugsaldri, voru handtekin í þágu rannsóknarinnar. Annar mannanna játaði aðild sína að málinu. Við húsleitina naut lögreglan aðstoðar fíkniefnaleitarhunds frá tollinum.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.