8 Mars 2011 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni við húsleit í fjölbýlishúsi í austurborginni um helgina. Um var að ræða amfetamín, um 50 grömm, og kannabisefni. Á sama stað var einnig lagt hald á ólögleg lyf. Þá tók lögregla líka í sína vörslu töluvert af peningum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Karl um þrítugt, sem áður hefur komið við sögu hjá lögreglu, var handtekinn í þágu rannsóknarinnar en málið telst nú upplýst. 

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.