16 Maí 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann hálft kíló af marijúana við húsleit í íbúð í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði í gær. Á sama stað var einnig lagt hald á um 500 þúsund krónur en það er mat lögreglu að peningarnir hafi verið tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Karl á þrítugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknarinnar.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.