3 Október 2013 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni við húsleit í austurborginni í fyrradag. Karl á þrítugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknarinnar og viðurkenndi hann að fíkniefnin, verulegt magn af kannabisefnum, hefðu verið ætluð til sölu. 

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.